Fréttir
Styrkir
Um Sveitamennt
Aðildarfélög
Stofnsamningur
Samþykktir
Skrifstofa
Stjórn
Bæklingur
ársskýrslur
Tenglar
Veftré
Umsóknarblöð á netinu
Fréttir - 24. ágúst 2010
140 starfsmenn grunnskóla Akureyrarbæjar útskrifast af námskeiði

Þann 20.ágúst sl. luku starfsmenn grunnskólanna aðrir en kennarar námskeiðinu „Að verða hluti af heild“. Námskeiðið var þróað af SÍMEY-Símenntunarmiðstöð ...


 
Fréttir - 23. júní 2010
Aukið framlag Sveitamenntar til endur-og símenntunar sveitarfélaga

Stjórn Sveitamenntar hefur ákveðið að auka framlag sjóðsins til námskeiða og annarra fræðsluverkefna hjá sveitarfélögum og stofnunum þeirra.

Frá ...



Starfsgreinasambandið

Samband íslenskra sveitarfélaga

Sveitamennt SGS og LN

Sveitamennt SGS og LN er starfsmenntunarsjóður starfsmanna sveitarfélaga á landsbyggðinni innan aðildarfélaga Starfsgreinasambands Íslands.

 

Sveitamennt tók formlega til starfa 1. janúar 2007 og byggir á gr. 13.4.3. um starfsmenntunarsjóð í kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga (LN) og Starfsgreinasambands Íslands (SGS).

 

Markmið sjóðsins er annars vegar að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma og efla starfsmenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni.

Sveitamennt skiptist í tvær deildir og sinnir hlutverki sínu með eftirfarandi hætti:

 

Sveitarfélagadeild sinnir hlutverki sínu með því að veita styrki til fræðsluverkefna á sviði starfsmenntunar sem eru í samræmi við markmið sveitarfélaga sem í sjóðinn greiða; stéttarfélaga sem að sjóðnum standa; eða verkefna sem sjóðstjórn skipuleggur. Auk þess styrkir deildin verkefni sem aðilar semja um í kjarasamningi.

 

Einstaklingsdeild veitir styrki til einstaklinga, félagsmanna aðildarfélaganna til þess að þeir eigi kost á að sækja nám/námskeið með vinnu án verulegs kostnaðar.

 

 

Sveitamennt SGS og LN - Skeifan 8, 2. hæð - 108 Reykjavík - 599 1450 - sveitamennt@sveitamennt.is